Þóra Bergný Kletturinn í austfirskri ferðaþjónustu

ferdathjonustuverdlaun 2014 webÞóra Bergný Guðmundsdóttir, sem rekið hefur farfuglaheimilið Hafölduna á Seyðisfirði frá árinu 1975, hlaut viðurkenninguna „Kletturinn" á uppskeruhátíð Ferðamálasamtaka Austurlands um helgina. Meet the Locals og Travel East hlutu verðlaun fyrir frumkvöðlastarf.

Klettinn hljóta þeir sem lengi hafa staðið í framvarðalínu atvinnugreinarinnar á Austurlandi. Sem fyrr segir hefur Þóra rekið farfuglaheimili á Seyðisfirði í tæp fjörutíu ár en hún hefur að undanförnu eflt starfsemina því hún keypti „Gamla spítalann" og gerði hann upp.

Þar með getur hún tekið á móti gestum allt árum en það var ekki hægt þar sem fyrra húsið er á snjóflóðahættusvæði og lokað frá október fram í apríl.

„Þóra er borin og barnfæddur Seyðfirðingur og menntaður arkitekt. Hún hefur verið öflug á sviði menningarmála í bænum, skráði húsasögu Seyðisfjarðar sem kom út árið 1995 og hefur verið talsmaður fyrir verndun húsaarfsins á Seyðisfirði. Hún hefur átt mikinn þátt í því að gera bæinn að eftirsóttum viðkomustað ferðamanna," segir í umsögn dómnefndar.

Meet the Locals og Travel East deilda frumkvöðlaverðlaun samtakanna. Það hefur ekki gerst áður en dómnefndin taldi ekki hægt að gera upp á milli þeirra. „Þau fóru af stað á svipuðum tíma, spanna yfir allan fjórðunginn, margir ferðaþjónustuaðilar taka þátt í þeim, markaðssetningin er heildstæð, og bæði verkefnin gagnast Austurlandi öllu,"

Tanni Travel kom á Meet the Locals sem er samvinnuverkefni margra ferðaþjónustuaðila og sveitarfélaga á Austurlandinu undir einu vörumerki. „Verkefnið sameinar flest það sem Austurland býður uppá og kemur jafnframt til móts við aukna eftirspurn ferðamanna eftir því sem er „ekta" og upprunalegt," segir í rökstuðningnum.

Austurför hafa gert vörur og þjónustu margra ferðaþjónustuaðila á Austurlandi aðgengilega í gegnum netið með ferðasöluvefnum TravelEast.is.

„Þær hafa hvatt til vöruþróunar og lagt mikið í markaðssetningu svæðisins. Áður var kvartað yfir því að afþreyingu skorti á Austurlandi. Með tilkomu TrvelEast.is verður því ekki lengur haldið fram."

Mynd: Stefán Bogi Sveinsson.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.