Lýðheilsa og íþróttir í Fjarðabyggð
Í Fjarðabyggð erum við stolt af því starfi sem unnið hefur verið í íþrótta- og æskulýðsmálum síðustu ár. Leiðarljós samstöðunnar hefur náðst þvert á stjórnmálaflokka að heilsa og líðan íbúa sé í fyrirrúmi allrar stefnumótunar og ákvarðanatöku. Meginmarkmiðið er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan.Að virkja einstaklinga og félagasamtök
Við skipulag tómstundastarfs í Fjarðabyggð hefur verið lögð áhersla á að virkja frjáls félagasamtök og hámarks nýtingu tómstundamannvirkja, íþróttabygginga, félagsmiðstöðva eða annarra bygginga. Félagsauður verður best virkjaður með þjónustu- og styrkjasamningum.
Í mars 2017 var Fjarðabyggð eitt þriggja sveitarfélaga á Austurlandi sem skrifuðu undir samstarfssamning við Embætti landlæknis sem Heilsueflandi samfélag. Sem felur í sér markvissa og heildræna heilsueflingu allra aldurshópa. Frá árinu 2022 hefur Fjarðabyggð staðið fyrir verkefninu Fjölþætt heilsuefling fyrir íbúa 65 ára og eldri í samstarfi við Janus – heilsuefling. Fjöldi þátttakenda er vonum framar og árangur gríðarlegur. 93% þátttakanda segja verkefnið hafa haft jákvæð áhrif á eigin heilsu og 79% segja það hafa bætt andlega líðan.
Málefnasamningur lífsgæða og lýðheilsu
Nýr meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð hefur kynnt málefnasamning með áherslum á lífsgæði, lýðheilsu og íþróttastarf. Horft er til samvinnu og samstarfs þvert á byggðarkjarna og fjárhagslegrar sjálfbærni svo Fjarðabyggð geti áfram eflst og dafnað.
Meðal mikilvægra þátta málefnasamningsins í að halda áfram góðu íþrótta- og lýðheilsustarfi eru:
• Ráðist verður í hönnun og undirbúning á uppgerð íþróttahúss Eskifjarðar. Húsið verði komið í notkun haustið 2025.
• Stigin verða fyrstu skref í einangrun og upphitun Fjarðabyggðarhallar fyrir lok kjörtímabils og leitað leiða við framkvæmdir og fjármögnun.
• Skoðaðar verða útfærslur á umgjörð íþrótta- og æskulýðsmála í Fjarðabyggð með það fyrir augum að efla mikilvægt starf en um leið horft til hagræðingar í rekstri.
• Í samstarfi notenda og hagsmunaaðila verður rekstur Skíðasvæðisins í Oddskarði greindur með það fyrir augum hvernig hægt sé að efla það til framtíðar.
• Unnið verður að gerð göngu- og hjólastíga innan Fjarðabyggðar til að efla lýðheilsu og lífsgæði.
Nýr meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð hefur kynnt málefnasamning með áherslum á lífsgæði, lýðheilsu og íþróttastarf. Samningurinn ber með sér metnað. Það er allra hagur að setja lýðheilsu í heilsueflandi samfélagi áfram í forgrunn. Þannig gerum við betur í Fjarðabyggð.
Jóhanna Sigfúsdóttir er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Elís Pétur Elísson er varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð.