Eiga von á um 1000 gestum á Fjórðungsmót hestamanna - Myndir

hestamannamot d1 0006 webUm tvö hundruð hestar eru skráðir til leiks á Fjórðungsmóti Austurlands í hestaíþróttum sem hófst á Stekkhólma í umsjá hestamannafélagsins Freyfaxa í dag. Formaður félagsins segir von á öllu því besta sem íslenski hesturinn hafi upp á að bjóða um helgina.

Mótið hófst með fordómum stóðhesta en í dag hefur staðið yfir forkeppni í B-flokki gæðinga. Seinni partinn verður síðan forkeppni barna og unglinga.

„Undirbúningurinn hefur gengið nokkuð vel, það var að minnsta kosti allt tilbúið í morgun. Það hefur allt gengið vel nema veðrið núna seinni partinn en við höfum enga stjórn á því," segir Bjarki Þorvaldur Sigurbjörnsson, formaður Freyfaxa.

Til mótsins mæta knapar og hestar úr hestamannafélögum frá Eyjafirði í norðri og vestur fyrir Hornafjörð.

Búist er við um 800-1200 gestum á mótið og að þeim fari að fjölga verulega á morgun en formleg mótssetning og keppni í 100 metra skeiði og B-flokki gæðinga verður annað kvöld.

Hörðust verður keppnin um helgina en mótinu lýkur á A-flokki gæðinga um kaffileytið á sunnudag.

Austurfrétt leit við í forkeppninni í B-flokki í dag. Efstur inn í úrslit er Bergur Jónsson á Kötlu frá Ketilsstöðum með einkunnina 8,59.
hestamannamot d1 0078 webhestamannamot d1 0106 webhestamannamot d1 0142 webhestamannamot d1 0159 webhestamannamot d1 0161 webhestamannamot d1 0210 webhestamannamot d1 0243 web
hestamannamot d1 0038 web

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar