Blak: Úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn

blak throttur umfa 22042014 0219 webÞróttur og Afturelding mætast í kvöld í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í Mosfellsbæ. Stemmingin er góð í liði Þróttar eftir sigur í síðasta leik.

„Ég hlakka til að taka bikarinn í Mosfellsbæ. Ef við spilum allan leikinn eins og við spiluðum fyrstu tvær hrinurnar í kvöld þá eigum við að vera betri," sagði Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, leikmaður Þróttar, í samtali við Austurfrétt eftir leik liðanna á Norðfirði á þriðjudagskvöld.

Þróttur vann fyrsta leikinn í Mosfellsbæ en Afturelding næstu tvo og hefði getað tryggt sér titilinn í Neskaupstað. Þróttur vann þann leik hins vegar 3-1 og tryggði sér oddaleikinn í kvöld.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og verður í beinni útsendingu á sporttv.is.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar