Uppsetningu á stálgrind að ljúka

Verið er að ljúka við að reisa stálgrind fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði. Samkvæmt áætlunum á að vera lokið við að klæða verksmiðjuhúsið í októbermánuði. Í klæðninguna verða notaðar einangraðar einingar úr áli og eru þær í sama lit og önnur mannvirki HB Granda við höfnina á Vopnafirði.

hbgrandi_stlgrind.jpg

,,Hér er allt á áætlun. Veður hefur verið gott og markmiðið er að ljúka við að reisa stálgrindina nú í vikunni. Steypuvinnu við spenna- og rafmagnshús á að ljúka í næstu viku og þá verður strax byrjað að setja upp klæðningu á stálgrindina,“ segir Sveinbjörn Sigmundsson, verksmiðjustjóri HB Granda á Vopnafirði á vef HB Granda, en framkvæmdum við nýja fiskmjölsverksmiðju félagsins á staðnum miðar vel og hin nýja bygging er farin að setja svip á umhverfi hafnarsvæðisins.

   

,,Ég á von á því að klæðingin geti gengið tiltölulega fljótt fyrir sig. Þegar lokið verður við uppsetningu á verksmiðjuþakinu þá verður hægt að koma fyrir varanlegri lýsingu sem auðvelda mun mönnum þá vinnu sem fylgja mun í kjölfarið,“ segir Sveinbjörn en að hans sögn er stefnt að því að byggingin verði fokheld áður en veðráttan versnar. Í framhaldinu verður hægt að hefja uppsetningu á tækjabúnaði en nú þegar er reyndar búið að koma fyrir loftþurrkaranum og eimingartækinu sem voru í verksmiðju félagsins í Reykjavík.

  

Alls vinna nú um 30 manns við byggingarframkvæmdirnar á Vopnafirði. Þar af eru 10 manns frá Héðni en aðrir eru starfsmenn undirverktaka á staðnum. Reiknað er með því að um 50 starfsmenn komi að framkvæmdunum áður en yfir lýkur en gert er ráð fyrir að verkið verði langt komið um áramót.

   Mynd/www.hbgrandi.is/Jón Sigurðarson.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar