Undirbúningur hafinn fyrir Legókeppni
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 8. bekk Seyðisfjarðarskóla verið að undirbúa sig fyrir hina árlegu First Lego League keppni. Keppnin verður haldin á Suðurnesjum laugardaginn 7. nóvember næstkomandi. Einn liður í undirbúningnum fyrir þessa keppni er að nemendur halda kynningu á verkefninu í heimabyggð sinni. Kynningin verður haldin í Gamla skóla, þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 18.00. Aðgangseyrir er aðeins 600 krónur, allur ágóði er fjáröflun fyrir ferðina.