Útsvar í kvöld

Lið Fljótsdalshéraðs mætir liði Kópavogs í annarri umferð spurningakeppninnar Útsvars í Sjónvarpinu í kvöld. Liðin mættust í úrslitum keppninnar í fyrra og þá vann Kópavogur. ImageEin breyting hefur orðið á liði Fljótsdalshéraðs síðan. Ingunn Snædal tók sæti systur sinnar, Urðar, en Stefán Bogi Sveinsson og Þorsteinn Bergsson eru enn í liðinu.
Kópavogsliðið hefur breyst. Það skipa Gísli Tryggvason, Kristján Guy Burgess og Helga Jónsdóttir en hvorki Gísli né Helga kepptu í fyrra.
Útsendingin hefst klukkan 20:10.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar