Sigtað á rjúpuna á morgun

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun. Það stendur í 18 daga og er síðasti veiðidagur 6. desember. Veiða má frá föstudegi til sunnudags þennan tíma. Búist er við fjölda rjúpnaskytta til Austurlands á veiðar um helgina, því veðurspá er sýnu best á því svæði. Heimamenn eru líka að gera sig klára. Nú orðið er unnt að kaupa veiðileyfi á netinu kjósi menn slíkt. Þá eru veiðileiðsögumenn að fara með útlendinga á rjúpu á Austurlandi. Slysavarnarfélagið Landsbjörg hvetur rjúpnaveiðimenn til að sýna aðgát.

rjpa.jpg

  Fréttatilkynning frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg um öryggi rjúpnaveiðimanna. Í nóvember í fyrra voru björgunarsveitir félagsins kallaðar út 11 sinnum til leitar og aðstoðar við rjúpnaskyttur.  Félagið vill því vekja athygli á nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í veiðiferðina. Almennar umgengnireglur við skotvopn:·     Geymið byssu og skot á læstum stöðum. ·     Ekki aka á veiðistað með byssuna hlaðna. ·     Hafið öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu.  Ferðareglur rjúpnaskyttunnar:·     Fylgist með færð og veðurspá. ·     Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum. ·     Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um. ·     Hafið með góðan hlífðarfatnað. ·     Takið með sjúkragögn og neyðarfæði. ·     Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau. ·     Athugið að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað. ·     Ferðist ekki einbíla. ·     Takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið, skóflu, kaðal og festið allan farangur. ·     Munið að akstur og áfengi fer ekki saman. ·     Ef ferðast er í bíl spennið beltin og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er um á vélsleða. ·     Látið vita reglulega af ykkur og skráið nafn og hvert ferðinni er heitið í bækur í fjallaskálum. ·     Ef ekki er hægt að komast lengra á bílnum bíðið í honum þar til hjálp berst, það er mun. auðveldara að finna bíl heldur en fólk á göngu og bíllinn veitir skjól. ·     Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur  

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar