Síðasti jólasveinninn

Nú eru jólin senn á enda runnin, þrettándi dagur jóla er í dag og jólasveinarnir flestir farnir til síns heima.  jolasveinninn.jpgÞeir sveinarnir eru þó ekki allir farnir, sá seinasti fer í dag. Hann var gripinn glóðvolgur á Norðfirði þar sem hann var að leggja af stað heim á leið og það sem meira er, hann var á bíl enda ekki vanþörf á þar sem hann þurfti að færa Kidda á Blómsturvöllunum svo stóran jólapakka vegna þess að Kiddi var búinn að vera svo svakalega þægur allt árið.
Það er nú einu sinni svoleiðis þegar menn eru þægir fá þeir stóra jólapakka og þar sem jólasveinarnir eru búnir að tileinka sér tæknina og hættir að ferðast á hreindýrasleðum nema skjótast með smágjafir fyrir óþæga, dugði þessi bíll ágætlega undir gjöfina til Kidda þó bíllinn sá væri komin nokkuð til ára sinna.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.