Hver á að borga viðgerðina?

Deilt er um hver eigi að kosta endurbætur á þakkanti Fjarðabyggðarhallarinnar. Ekki er sátt um hvort núverandi frágangur kantsins sé hönnunargalli eða ekki því hönnuður, verktaki og húseigandi eru ekki sammála um hver eigi að borga lagfæringarnar. Skipulags- og mannvirkjanefnd Fjarðabyggðar hefur samþykkt að fenginn verði dómskvaddur matsmaður til að leysa úr ágreiningnum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar