Heimildamyndakvöld í Sláturhúsinu næstu fimmtudaga

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum sýnir næstu þrjú fimmtudagskvöld myndirnar þrjár sem tilnefndar voru sem heimildamyndir ársins á nýafstaðinni Edduverðlaunahátíð.

Fyrst á dagskrá er myndin Svona fólk sem sýnd verður í kvöld. Myndin fjallar um réttindabaráttu samkynhneigðra á Íslandi á árunum 1975-1985.

Örlagaríkt viðtal í tímaritinu Samúel 1975 við Hörð Torfason um kynhneigð hans hratt af stað ófyrirsjáanlegri atburðarás og markar upphaf réttindabaráttu homma og lesbía á Íslandi. Í myndinni eru raktar aðstæður og upphaf þessarar baráttu fram til 1985, sögur fólks sem daglega tókst á við ríkjandi gildismat og fordóma í von um að gera Ísland byggilegt fyrir sig og sína.

Næsta fimmtudag verður sýnd myndin UseLess. Tvær af grunnþörfum mannsins, matur og klæði, eru farnar að hafa í för með sér gífurlega slæm umhverfisáhrif. Myndin fjallar um matar- og tískusóun og er áhorfendum gerð grein fyrir því hve mikið af auðlindum fer til spillis þegar vara endar í ruslinu eftir langt framleiðsluferli og ferðalag til neytandans.

Þriðja myndin er Litla Moskva sem segir sögu sósíalismans í Neskaupstað.. Í myndinni er fjallað um stöðu íslensks sjávarþorps á tímamótum þar sem einangrun og samstaða samfélags er tekin til skoðunar með hliðsjón af sérstökum pólitískum aðstæðum.

Sýningarnar hefjast allar klukkan 19.30 og er aðgangur ókeypis.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.