Flosi í Bakú: Euphooooooooooria er að nálgast Austurland

flosi_baku4.jpg

Flosi Jón Ófeigsson, Eurovision-sérfræðingur Agl.is, skemmti sér fram undir morgun með íslenska hópnum eftir fyrra undanúrslitakvöld keppninnar og fékk einkadans við Jónsa. Hann segir Asera sérlega vingjarnlega við gesti sína.

 

Þá er maður loksins búinn að jafna sig eftur skrautlegt kvöld á þriðjudaginn. Íslenski hópurinn sýndi öllum hvernig á að skemmta sér og fagna sigri. Fyrir keppnina þá labbaði ég stolltur með íslenska fánan um götur og mér leið eins og  Carolu…. „Nei  Flosi reyndu nú að sýna smá karlmennsku í þér, reynum aftur“ …mér leið eins og frægum fótboltakappa. 

Það voru allir að spurja hvor tþeir gætu fengið mynd með mér og snerta mig og segja hvað ég væri fallegur. Og auðvitað með minn húðlit þá var ég rauðari en epli. Ég fór á barinn til að fá mér bjór með vinum mínum og einn gaur sagði „áfram Selfoss“ á ensku og gaf mér bjór og sagði „velkominn til Bakú.“

Það er hreinlega ótrúlegt hvað fólk er vinalegt hér. Vinur minn og ég vorum á leiðinni heim í gærmorgun og við vorum svangir og fórum í búðina við hliðina á þar sem við búum, keyptum kjúkling  og brauð og kók. Þegar við ætluðum að fara að borga þá sagði búðargaurinn „ Þetta er gjöf frá mér til ykkar, velkominn til Baku“. Þetta er alveg ótrúlegt og erfitt að gera sig grein fyrir hvort þessu þjóð sér virkilega svona óhamingjusöm þegar kemur að mannréttindum. Ég hitti samt mótmælendur þegar ég var að labba í gamla bænum og þá var mér ljóst að það er fólk sem er kúgað hérna en er samt svo vinalegt við okkur Eurovision-aðdáendur þrátt fyrir að sumir af þeim hafi hreinlega misst húsin sín þegar höllinn var byggð.

En að keppninni aftur, Jónsi og Gréta fóru á kostum á blaðamannafundinum og svo seinna á Euroklúbbnum. Það var íslenskur  hringur á dansgólfinu og Jónsi bræddi hvern homma-blaðamanninn á eftir öðrum. Það var því gaman þegar Jónsi gaf mér einkadans á dansgólfinu þar sem konur og karlar voru græn af öfund. 

Þegar klukkan var 6 um morgunin var yndisleg stepla, sem er partur úr íslenska hópnum, sem sagði mér að koma upp á hótel til að fagna með þeim. Þegar við vorum í leigubílnum haldandi á Long Island Icetea vorum við bæði farinn að hugsa…. „Jæja erum við í þessum pakka núna….“ en við héldum samt áfram og fengum okkur frábæran morgunmat og spjölluðum við hluta af danska og svissneska hópnum. Það var gaman að sjá hvað Svisslendingarnir voru rólegir með það að hafa ekki komist áfram sem þeir áttu svo sannarlega skilið. Sviss var eina landið sem ég giskaði á vitlaust á fyrra undanúrslitakvöldinu og í staðinn fór þetta leiðinlega lag frá Ungverjalandi. 

Að mínu mati voru 3 lönd sem stóðu upp úr af vissum ástæðum, Rússland fékk allan salinn með sér og allir sungu með þeim og dáðust af krúttleikanum, Albanía var klárlega lagið sem ég var gjörsamlega orðlaus yfir og ég held að hún hafi unnið dómaravalið. Keppnin var ekki var ekki einu sinni sýnd í Albaníu þar sem það ríkir þjóðarsorg í Albaníu vegna slys sem varð þar í landi  fyrr í vikunni og að sjálfsögðu ekki  gleyma Íslandi sem var með allan pakkan. Ég var smá hræddur með  „chemistryið“ milli Grétu og Jónsa en þau voru svo sannarlega góð saman og bræddu mig allavega þar sem ég grét af gleði eftir atriðið þeirra

Nú er það bara spurning hvað gerist í kvöld þar sem Euphoria stígur á stokk og tryllir salinn. 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar