Bílar og vélar á Vopnafirði bjóða til afmælishátíðar

Bílar og vélar á Vopnafirði fagna sumri og halda upp á 20 ára afmæli sitt um leið.   Fyrirtækið var formlega stofnað 1.apríl 1990.  Forsvarsmenn fyrirtækisins hvetja alla til að mæta í Miklagarð í kvöld og taka þétt í gleðinni. 

vopnafjordur.jpgEigendur og starfsmenn fyrirtækisins ætla að minnast tímamótanna í kvöld, miðvikudaginn 21.apríl með því að bjóða Vopnfirðingum og nærsveitungum í heimsókn á verkstæði sitt að Hafnarbyggð 14 milli klukkan 15 og 17.

Að kvöldi sama dags klukkan 21:00 er svo boðið á stórtónleika í Miklagarði þar sem hljómsveitin BAGGALÚTUR skemmtir.
Eftir Baggalútstónleikana verður  lifandi tónlist á barnum í Miklagarði til kl. 03:00, frítt inn aldurstakmark 18 ár.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar