Bensínlaust á Vopnafirði á laugardag

Ökumenn á Vopnafirði gátu ekki tekið bensín á bíla sína milli klukkan tvö og sjö síðastliðinn laugardag. Vegna mistaka við áfyllingu var bensín sett á vitlausa tanka. Nóg bensín var því á staðnum en vegfarendur gátu ekki nýtt sér það. Um kvöldmatarleytið kom bíll og dældi á milli tanka.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar