Ben Stiller ætlar að taka kvikmynd á Seyðisfirði

ben_stiller_web.jpg

Senur í væntanlega kvikmynd bandaríska stórleikarans og leikstjórans Ben Stillers verða teknar á Seyðisfirði í haust. Gert er ráð fyrir rúmlega 200 manna fylgdarliði í bæinn og töluverðum umsvifum í bænum í kringum tökurnar.

 

Stiller ferðaðist um Austurlandi um miðjan september og dvaldi meðal annars eina nótt á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Ferðin austur virðist hafa verið ábatasöm því framleiðslufyrirtækið True North, sem heldur utan um för tökuliðsins, hefur boðað komu þess til Seyðisfjarðar í haust.

Gert er ráð fyrir að ríflega 200 manna lið komi til bæjarins, líklega í september, í tengslum við töku á Hollywood-mynd þar sem Ben Stiller verður leikstjóri og einn aðalleikara. „Senur verða teknar á leiðinni niður heiðina og inn í bæ,“ segir í minnisblaði fjármálastjóra bæjarins sem nýverið var tekið fyrir í bæjarstjórn.

Tökuliðið verður á Seyðisfirði í nokkra daga og fylgir því töluvert umstang. Óskað er eftir plássi undir bíla, mötuneytisaðstöðu, skrifstofu og fleira. Undirbúningur fyrir tökurnar hefst í Reykjavík um miðjan júní.

Stjörnum prýtt lið leikara

Myndin ber heitið „The Secret Life of Walter Mitty“  og er endurgerð á vinsælli kvikmynd frá árinu 1947. Söguþræðinum hefur þó lítillega verið breytt. Í nýju útgáfunni er Walter Mitty, sem Stiller leikur, myndaritstjóri tímarits sem hefur ofan af fyrir sjálfum sér með dagdraumum. Hann fær tækifæri til að upplifa alvöru ævintýri þegar ein frummyndin úr safninu týnist.

Ben Stiller er einn af þekktustu gamanleikurum Hollywood. Hann hefur áður leikstýrt og leikið aðalhlutverkið í myndum eins og Zoolander og Tropic Thunder.  Af öðrum afrekum Stiller á hvíta tjaldinu má nefna Night at the Museum og Meet the Fockers myndaraðirnar og Meet the Parents, auk þess sem hann talar fyrir ljónið Alex í Madagaskarteiknimyndunum.

Með aðalkvenhlutverkið í myndinni fer Kirsten Wiig sem festi sig í sessi með sumarsmelli síðasta árs, Bridesmaid. Þar lék hún aðalhlutverkið og skrifaði handritið. 
 
Þá er á leikaraskránni Shirley MacLaine sem fjórum sinnum hefur verið tilnefnd til óskarsverðlauna sem besta leikkona í aðalhlutverki auk þess sem hún hampaði styttunni árið 1983 fyrir leik sinn í Terms of Endearment.

Fleiri tökustaðir?

Að því er fram kemur á kvikmyndavefnum IMDB.com verður myndin tekin á Íslandi og í New York. Hún verður frumsýnd árið 2013. Agl.is er ekki kunnugt um aðra tökustaði hérlendis en vitað er að Stiller skoðaði sig um í Stykkishólmi og Reykjavík í heimsókn sinni í haust.

Eins og áður sagði dvaldist hann eina nótt á Djúpavogi en þar hafa menn ekki frekar frétt af áhuga hans. „Honum leist mjög vel á en ég hef ekkert heyrt meira,“ sagði Gauti Jóhannsson, sveitarstjóri, í svari við fyrirspurn Agl.is.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.