Banaslys í Fáskrúðsfirði
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 16. maí 2009 09:10 • Uppfært 08. jan 2016 19:20
Banaslys varð á þjóðvegi 92 í sunnanverðum botni Fáskrúðsfjarðar í morgun þegar bifreið var ekið út af veginum.
Einn maður lést og annar var fluttur á sjúkrahús. Slysið var skammt sunnan við brúna yfir Dalsá, nærri bænum Tungu.
Lögreglan á Eskifirði vill ekki greina nánar frá málinu fyrr en líður á daginn. Bænastund verður í Fáskrúðsfjarðarkirkju klukkan 18.