Aflaverðmæti Aðalsteins yfir milljarð

Aflaverðmæti Aðalsteins Jónssonar SU-11, flaggskips Eskju, er komið yfir einn milljarð það sem af er árinu. Í frétt á vef fyrirtækisins segir að þennan góða árangur megi að hluta þakka mjög góðri makrílveiði í júní og byrjun júlí. Togarinn hefur að undanförnu veitt síld sem er flökuð og fryst fyrir markað í austur-Evrópu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar