Valdimar O. ráðinn sveitarstjóri á Vopnafirði
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum í gær að ráða Valdimar O. Hermannsson sem sveitarstjóra út kjörtímabilið. Valdimar hefur starfað sem verkefnastjóri hjá sveitarfélaginu síðan í byrjun apríl.Einni bestu kolmunnavertíð sögunnar lokið
Skip Eskju veiddu yfir 21.000 tonn á nýafstaðinni kolmunnavertíð, sem er ein sú besta sem sögur fara af. Tvö skipa félagsins eru nú Færeyjum í slipp en rólegt verður hjá fyrirtækinu þar til makrílveiðar hefjast í júlí.Gjaldtaka hefst líklega í Hafnarhólmann næsta sumar
Heimastjórn Borgarfjarðar eystri vill hverfa frá því að hafa aðgangseyri að Hafnarhólma valkvæðan fyrir gesti eins og nú er. Sýnt þykir að með þeim hætti megi afla mun meiri fjármuna. Það fjármagn yrði að stóru leyti hægt að nýta til að vernda og gæta hólmans en ekki síður bæta upplifun gesta enn frekar.
Vopnafjarðarskóli setur sér viðmið um fjarvistir nemenda
Fjarvistir nemenda við Vopnafjarðarskóla hafa aukist mikið síðastliðin ár og við því ætla skólayfirvöld að bregðast strax næsta vetur.
Verkmenntaskólinn fékk viðurkenningu á uppskeruhátíð Evrópusamstarfs
Verkefnið „Efling starfsnáms við VA með erlendu samstarfi II“ sem Verkmenntaskóli Austurlands hefur staðið fyrir um nokkurra ára skeið fékk fyrr í þessum mánuði sérstaka gæðaviðurkenningu á 30 ára uppskeruhátíð Evrópusamstarfs.
Púsluspil hvern dag að reka kjörbúð á Vopnafirði
Í sumar verða fjögur ár liðin frá því að nýir eigendur, Fanney Hauksdóttir og Eyjólfur Sigurðsson, tóku við rekstri kjörbúðarinnar Kauptúns á Vopnafirði .Fyrri eigendur höfðu ákveðið að hætta eftir 30 ára starfsemi og fram á síðustu stundu var ekki útlit fyrir að neinn tæki við.Halla Hrund hæst í könnun Austurfréttar/Austurgluggans
Halla Hrund Logadóttir er sá forsetaframbjóðandi sem nýtur mestrar hylli Austfirðinga, miðað við könnun sem Austurfrétt/Austurglugginn gerði í síðustu viku.Stöðug aukin notkun á Norðfjarðarflugvelli eftir malbikun flugbrautar
Notkun á Norðfjarðarflugvelli eftir að flugbrautin þar var malbikuð sumarið 2017 hefur aukist jafnt og þétt. Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð telja mikilvægt að áfram verði staðinn vörður um völlinn.Metfjöldi þreytti ríkisborgarapróf á Egilsstöðum
Tæplega 30 erlendir einstaklingar búsettir á Austurlandi þreyttu svokallað ríkisborgarapróf í íslensku á Egilsstöðum í gær en fjöldinn aldrei verið meiri.
Grettir sterki lagður af með Jón Kjartansson - Myndir
Dráttarbáturinn Grettir sterki lagði um kvöldmat í gær af stað með fjölveiðiskipið Jón Kjartansson frá Eskifirði í togi. Ferðinni er heitið til Esbjerg í Danmörku þar sem skipið endar sína daga þar sem það verður rifið í brotajárn.Síðasta tækifærið að taka þátt í LungA
Í dag opnaðist fyrir skráningu á listahátíðina LungA á Seyðisfirði sem samanstendur sem endranær af fjölmörgum listasmiðjum auk tónleika og skemmtanahalds í lokin. Þetta verður í síðasta skipti sem hægt verður að taka þátt.