Vandamálið að allir eru á sumardekkjum

Talsverður erill var hjá lögreglu og björgunarsveitum í gær við að aðstoða ferðalanga í vandræðum á fjallvegum. Tvær bílveltur voru tilkynntar og tveir árekstrar á Breiðdalsheiði.

Dagurinn byrjaði með bílveltu á Öxi um klukkan ellefu og skömmu síðar var tilkynnt um aðra veltu á Jökuldal. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum heldur skautuðu bílarnir út af á hægri ferð í krapa og hálku.

Eftir hádegið var tilkynnt um tvo árekstra á Breiðdalsheiði. Fyrst skullu tveir bílar saman og síðan fjórir. Árekstrarnir urðu allir á lítilli ferð en ökumenn bílaleigubíla á sumardekkjum náðu ekki að stöðva þá í snjónum. Vegna þessa var Breiðdalsheiði lokað á tíma í gær.

Hjá lögreglunni á Egilsstöðum fengust þær upplýsingar að talsverð umferð væri um Breiðdalsheiði þar sem heiðin er enn skráð sem þjóðvegur númer eitt í leiðsögutækjum ferðalanga. „Vandamálið er að allir eru á sumardekkjum.“

Um klukkan átta var björgunarsveitin á Vopnafirði kölluð út til að aðstoða ferðafólk á tíu bílum sem voru í vandræðum í Langadal. Í færslu björgunarsveitarinnar segir að alla jafna hefðu aðstæðurnar ekki kallað á stórmál en bílarnir ekki verið útbúnir til ferða á fjöllum. Nú hljóti bílaleigur að keppast við að koma bílum sínum á vetrardekk þannig auðveldar verði fyrir ferðalanga að komast á áfangastað.

Ferðamenn aðstoðaðir í Langadal í gærkvöldi. Mynd: Björgunarsveitin Vopni

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.