Unnur Birna ráðinn forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Austurlandi

Unnur Birna Karlsdóttir, doktor í sagnfræði, hefur verið ráðin forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Austurlandi. Með ráðningunni er á ný efld starfsemi sem hlé var gert á eftir hrun.

Í tilkynningu er haft eftir Sæunni Stefánsdóttur, forstöðumanni Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands, að um sé að ræða fyrsta skrefið til eflingar starfs setursins á Austurlandi. Þegar sé verið að leggja drög að metnaðarfullum rannsóknaverkefnum og fjármögnun þeirra til að efla starfsemina og draga fleira fólk og nemendur inn í starfið.

Setrið var fyrst sett á fót árið 2008 en gert hlé á reglulegri starfsemi síðla árs 2010 út af aðhaldsaðgerðum skólans út af hruninu. Stofnun rannsóknasetra styrkti þó nokkur smærri rannsóknaverkefni sem unnin voru á svæðinu ásamt því að veita stuðning til að hægt væri að auka tímabundið þjónustu við nemendur í fjarnámi við HÍ.

Frá árinu 2015 hefur verið starfsemi á vegum Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands á Austurlandi með rannsóknaverkefninu „Maður og náttúra“ sem Unnur Birna hefur leitt. Þar er hreindýrið og þýðing þess í íslenskri náttúrusýn og menningu er viðfangsefnið. Afrakstri verkefnisins verður m.a. gerð skil í bók sem Sögufélagið mun gefa út á næsta ári.

Unnur Birna lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 2010 en áður hafði hún lokið MA- og BA-prófi í sagnfræði og námi í kennslu- og uppeldisfræði frá Háskóla Íslands. Í doktorsritgerð sinni „Þar sem fossarnir falla. Náttúrusýn og nýting fallvatna á Íslandi 1900 – 2008“ fjallaði hún um sambands manns og náttúru út frá sjónarhóli og aðferðafræði umhverfissagnfræði. Hún var forstöðumaður Minjasafns Austurlands 2012-2015.

Eftir Unni Birnu liggja þó nokkrar fræðigreinar og bókarkaflar og þá hefur hún flutt fjölmarga fyrirlestra um umhverfismál og umhverfissagnfræði. Þá hefur hún komið að kennslu við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst.

„Við erum mjög glöð með að rannsóknasetrið hefur tekið til starfa á ný á Egilsstöðum og við hlökkum til að sjá það vaxa og dafna, fræðastarfi og samfélaginu öllu til heilla. Við óskum Unni Birnu einnig til hamingju með ráðninguna,“ segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs en sveitarfélagið kemur að rekstri setursins.

Markmið Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands er m.a. að stuðla að rannsóknum, menntun og leiðbeiningu framhaldsnema víða um land og vera vettvangur samstarfsverkefna háskólans við nærumhverfi og nærsamfélög setranna. Með þeim hætti leggja rannsóknasetrin af mörkum við að efla tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.