Tveimur í viðbót batnað eftir covid-19 smit

Fimm þeirra átta sem greinst hafa með covid-19 smit á Austurlandi hafa náð sér eftir veikindi sín. Ekkert nýtt smit hefur greinst í fjórðungnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands.

Alls hafa átta smit greinst í faraldrinum eystra, en þó aðeins eitt síðustu tíu daga. Í tilkynningu kemur fram að í dag hafi verið staðfest að tveir til viðbótar af þessum átta hafi náð sér eftir veikindin.

Þeir voru áður þrír, sem þýðir að þrír eru eftir í einangrun vegna smits. Síðast greindist smit á Austurlandi á miðvikudag.

Einn einstaklingur losnaði úr sóttkví síðasta sólarhring en annar bættist við. Eftir sem áður eru því 23 einstaklingar í sóttkví.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.