
Þyrla gæslunnar flutti brúarefni að Hengifossi – Myndir
TF-Eir, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti í gær efni í brú sem stendur til að reisa neðan við Hengifoss. Stígnum næst vinnusvæðinu var lokað meðan þyrlan sveimaði yfir en forvitið fólk gat komið sér fyrir og fylgst með úr hóflegri fjarlægð.Þyrlan kom austur klukkan rúmlega fjögur, heldur síðar en áætlað var. Fyrst var efnið skoðað á jörðu niðri og það búið undir flutninginn áður en það var fest neðan í þyrluna.
Þyrlan fór alls fimm ferðir fram og til baka á um klukkustund, en verkinu lauk um klukkan sex. Í þeirri fyrstu setti hún út tvo smiði frá Austurbygg og tvo úr áhöfn sinni til að taka á móti efninu á jörðu niðri.
Í fyrstu tveimur ferðunum var farið með handrið brúarinnar sem samtals vega 1700 kg. Í þriðju ferðinni var tekinn biti í burðarvirki brúarinnar en í síðustu tveimur ferðunum komu aðalburðarbitarnir tveir. Hvor þeirra er 17 metra langur og vega 1,1 tonn, en þeir eru gerðir úr límtré.
Ferðin með fyrri bitann virtist ganga brösuglega. Strekkingsvindur var innan úr dalnum og flaug þyrlan upp í vindinn með bitann dinglandi neðan í. Sjónarvottar fylgdust með hvernig bitinn sveiflaðist eins og róla í 45° horn upp frá réttri stöðu.
Að lokum tókst að hemja bitann og gekk ágætlega að koma honum á sinn stað en í seinni ferðinni gekk allt upp.
Þyrlan lenti síðan og tók áhafnarmeðlimi sína upp í áður en hún flaug til Seyðisfjarðar þar sem hún hífði brú á Selsstaðaá, á gönguleiðinni milli Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar. Vinnudeginum lauk svo um kvöldið þegar áhöfn þyrlunnar flutti vatnstanka úr Herðubreiðarlindum út á veg.
Á næstu dögum verður brúin sjálf smíðuð ofan á bitana. Hún er staðsett á útsýnisstað neðan við Hengifoss. Með henni verður til gönguleið hringinn í kringum gilið sem Hengifossá fellur eftir en síðasta á var brú sett á ánna neðst í gilinu. Aðalefni beggja brúa er lerki úr Fljótsdal, unnið af heimafólki hjá Skógarafurðum.