„Það er ekki slys að setjast drukkinn undir stýri“

„Ég er búin að spila þetta aftur og aftur í höfðinu á mér í allan dag og er bara að reyna að komast yfir reiðina sem blossaði upp þegar ég sá að ökumaðurinn var augljóslega drukkinn,“ segir Anna Sigrún Benediktsdóttir, sem búsett er á Reyðarfirði, en hún lenti í afar óskemmtilegri reynslu snemma í morgun þegar drukkinn ökumaður ók á ofsahraða á móti henni á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.



Anna Sigrún skrifaði þessa færslu á Facebook síðu sína í morgun;

„Óskar Þór svaf illa í nótt. Hann er að díla við endalausa eyrnabólgu og á erfitt með að sofa nema sitjandi.

Ég ákvað því klukkan rétt fyrir 7 í morgun að fara smá rúnt með hann, reyna að leyfa honum að hvílast aðeins. Setti róandi tónlist á, hækkaði hitann í bílnum og setti stefnuna á að keyra á Eskifjörð og til baka enda sofnar hann yfirleitt um leið og við keyrum útúr bænum.

Við erum rétt komin framhjá Alcoa afleggjaranum þegar ég sé bíl koma á móti á ofsahraða og bílstjórinn missir stjórn. Bíllinn svigar á milli akreina og nálgast okkur svo hratt á okkar vegarhelmingi að ég gat ekki einu sinni ímyndað mér annan endi á þessu en hræðilegan. Ég var búin að hægja alveg niður og var að reyna að taka ákvörðun á milli þess að fara yfir á öfugan vegarhelming og treysta því að hann svigaði ekki aftur yfir eða þá að hreinlega keyra bara útaf. Ákvörðun sem allt í einu var svo flókin þegar ég var ekki bara ein í bílnum.

Það hafa ekki verið meira en 2 metrar á milli bílanna þegar hinn keyrir sjálfur útaf en veltir ekki svo ég var nokkuð viss um að bílstjórinn var heill. 3-4 mínútum seinna skjögrar bílstjórinn uppá veg. Skjögrar já, enda blindhaugafullur.

Ég hefði ekki verið ábyrg gjörða minna ef Óskar hefði ekki verið í aftursætinu og getað horft á. Sem betur fer kom þarna að annar góður maður sem beið með okkur eftir lögreglunni.

Bílstjórinn bar fyrir sig þeirri ástæðu að vera ungur og vitlaus. Ungur og vitlaus, já.

Kæra fólk. Ekki drekka og keyra. Aldur og skortur á greind verður ekki tekin sem gild afsökun þegar þú (svo ungur og vitlaus sko) hræðir, meiðir, slasar eða jafnvel drepur sjálfan þig og aðra. Lítið barn með eyrnabólgu sem langaði bara að sofa smá.

Gerið það. Bara plís.

Þessi færsla er skrifuð í geðshræringu og áfalli hjá nýbakaðri móður sem í augnablik sá fyrir sér að lífinu með tvíburunum sínum væri lokið. Allt vegna þess að einhver ókunnugur var ungur og vitlaus.“

Ein sekúnda hefði breytt máli
„Það var nógu mikið áfall að vera svona nálægt hörðum árekstri með barnið í bílnum og svo bætast ofan á alls konar tilfinningar þegar ég áttaði mig á að þetta er í raun ekkert slys. Það er ekki slys að setjast drukkinn undir stýri og vera svona nálægt því að valda öðrum skaða,“ sagði Anna Sigrún í samtali við Austurfrétt nú undir kvöld.

Anna Sigrún segist ekki vilja hugsa til þess ef hún hefði til dæmis akkúrat verið að athuga með barnið í baksýnisspeglinum. „Þegar þetta byrjaði því það munaði svo ótrúlega litlu. Ein sekúnda hefði breytt máli. Vísan um að setjast ekki undir stýri undir áhrifum vímugjafa verður aldrei of oft kveðin. Eins og ég segi, það hefði ekki þurft meira en eina sekúndu í viðbót og þetta hefði farið illa. Verum öll vakandi og höfum samband við lögreglu strax ef við vitum af einhverjum sem er að aka undir áhrifum.“

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.