Sparisjóður Austurlands ræðir sameiningu við Sparisjóð Höfðhverfinga

Stjórnir Sparisjóðs Austurlands og Sparisjóðs Höfðhverfinga hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um sameiningu sjóðanna. Með því telja þær hægt að skapa grundvöll til sóknar og stækkunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórnirnar sendu frá sér í dag. „Ég tel að mörg tækifæri felist í samrunanum. Vel fjármagnaður og sterkari sparisjóður mun geta þjónustað viðskiptavini sína enn betur og með meiri styrk en áður og stutt betur við þá spennandi atvinnuuppbyggingu og aðra jákvæða þróun sem nú á sér stað á starfssvæðum þessara tveggja sparisjóða,“ er haft þar eftir Jóni Einari Marteinssyni, formanni stjórnar Sparisjóðs Austurlands.

Í tilkynningunni segir að báðir sjóðirnir standi vel, eiginfjárhlutföllin séu traust sem og lausafjárstaða. Með sameiningu sé hægt að sækja fram um leið og áfram verði stutt vel við einstaklinga og fyrirtæki á starfssvæðum sjóðanna, sem eru mest í Eyjafirði og Austfjörðum.

„Sterkari sparisjóður mun einnig geta sinnt samfélagslegri ábyrgð sinni betur, en samkvæmt lögum rennur hluti hagnaðar í samfélagsstyrki. Arðsemi og skilvirkur rekstur er alltaf í forgangi en það er styrkur og sérstaða sparisjóðanna að þeir vinna með nærumhverfi sínu og láta gott af sér leiða og standa vörð um og þróa atvinnulíf, mannlíf og velferð á sínum starfssvæðum.

Ég tel einnig að sameiningin muni renna styrkari stoðum undir áframhaldandi rekstur allra sparisjóðanna og hugsanlega leiða til sameiningar fleiri sparisjóða þegar fram líður,“ er haft eftir Jóni Einari.

Býst við frekari sameiningum sparisjóðanna


Jóhann Ingólfsson, formaður stjórnar Sparisjóðs Höfðhverfinga, telur þessa sameiningu geta verið upphafið að frekari sameiningum eða stækkunum sparisjóðanna.

„Ég tel þetta mjög jákvætt skref. Mikilvægt er að efla sparisjóðina til að gera þeim kleift að hagræða en ekki síður að gera þá vel búna til að stækka. Við væntum mikils af þessum viðræðum. Að okkar mati verður til vel fjármagnaður og traustur sparisjóður með sterkt kjölfestueignarhald.

Vonandi verður þetta upphafið að frekari sameiningum eða stækkunum sparisjóðanna því þeir munu verða til framtíðar áhugaverður og öðruvísi valkostur fyrir fólk og fyrirtæki á bankamarkaði. Hugmyndafræði og nálgun okkar á þennan rekstur er annar heldur en stóru viðskiptabankanna. Sparisjóðirnir eru minni, persónulegri og sveigjanlegri gagnvart okkar viðskiptavinum og við teljum okkur í ágætri stöðu til framtíðar á bankamarkaði.“

Stærstu eigendur Sparisjóðs Höfðhverfinga eru KEA og Sænes ehf. en stærstu eigendur Sparisjóðs Austurlands eru Ríkissjóður og Fjarðabyggð. Gangi sameiningin eftir mun KEA leggja sameinuðum sjóði til umtalsvert nýtt eigið fé á næstu árum til frekari vaxtar.

Elsta fjármálastofnun landsins


Sparisjóður Austurlands var stofnaður sem Sparisjóður Norðfjarðar haustið 1920. Nafninu var breytt árið 2015 en aðsetur sjóðsins er í Neskaupstað. Vilhjálmur G. Pálsson er sparisjóðsstjóri og hefur verið þar frá árinu 2004.

Sparisjóður Höfðhverfinga er elsta starfandi fjármálastofnun í landinu, stofnaður á nýársdag árið 1879. Hann hefur ávallt verið með aðalaðsetur sitt á Grenivík en hefur rekið útibú á Akureyri frá árinu 2012.

Fjórir sparisjóðir eru eftir í landinu, auk þeirra tveggja sem ræða nú sameiningu Sparisjóður Strandamanna og Sparisjóður Suður-Þingeyinga. Sparisjóðirnir urðu flestir rúmlega sextíu talsins um 1960.

Mynd: Kristín Hávarðsdóttir

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.