Sóttvarnareglur ekki brotnar af ásetningi
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hafa borist nokkrar ábendingar um meint brot á sóttvarnareglum. Brotin snúast frekar um gáleysi en ásetning og hefur í öllum tilfellum verið snarlega bætt úr.Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag sem minnir fólk á að kynna sér þær reglur sem í gildi eru og fylgja þeim eftir. Sérstaklega er minnt á að allir sem fæddir eru fyrir árið 2011 eru skyldugir til að nota grímur í verslunum.
Þá er vikið orðum að starfsfólki grunnskóla sem notað hafa daginn í að laga skólastarfið að hertum reglum. Aðgerðastjórnin kallar eftir að sýndur sé skilningur á flóknum verkefnum þar og minnt á að mikilvægt sé að foreldrar og nemendur leggi einnig sín lóð á vogaskálarnar.
Staðan á Austurlandi er góð miðað við aðra landshluta, tveir eru í einangrun eftir landamæraskimum og þrír í sóttkví.
Augljóst er þó að lítið megi út af bregða. Á upplýsingafundi almannavarna í morgun kom fram að um fjórðungur þeirra 26 sem greindust með veiruna í gær byggju utan höfuðborgarsvæðisins. Þá væru enn að koma fram litlar hópsýkingar, einkum á Norðurlandi og þar álag aukist á Sjúkrahúsið á Akureyri.