Nýsköpunarkeppni í gegnum netið í Neskaupstað

Neskaupstaður verður einn af fjórum stöðum á landinu þar sem nýsköpunarkeppnin MAKEeathon verður haldin. Í keppninni, sem fer fram í gengum netið á Neskaupstað, er lögð áhersla á nýtingu hliðarafurða í sjávarútvegi.

Það er Matís sem, heldur þessa keppni en viðburðurinn er hluti af verkefninu MAKE-it! sem er fjármagnað af Evrópusambandinu (EIT Food), að því er segir í tilkynningu. Keppnin stendur frá 10. til 20. september.

"MAKEathon fer fram í Reykjavík, Akureyri, Neskaupstað og á vestfjörðum (Bolungarvík/Ísafirði). Um er að ræða nýsköpunarkeppni sem leggur áherslu á að búa eitthvað til með höndunum til þess að mæta ákveðinni áskorun eða vandamáli.

Þátttakendur fá að vinna með hráefni, bein og roð af fiski, og fá tækifæri til að „leika sér“ með það og búa til úr því frumgerð að vöru.

Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við FabLab á Íslandi og gefur þátttakendum frábært tækifæri til að kynnast nýsköpunarumhverfinu betur og jafnframt tækifæri til að þróa eigin vöru."

Síðan segir að MAKEathonið í Reykjavík, Akureyri og Neskaupsstað þarf að fara fram að mestu í gegnum netið.

Þátttakendur fá tækifæri til að fara í FabLab og vinna að því að búa til frumgerðina sína. Það er þó valkvæmt og þátttakendum er velkomið að vinna verkefnið að heiman.

MAKEathonin eru opin öllum, engrar sérþekkingu í fiskvinnslu eða öðru er krafist og það er mögulegt að taka þátt og vinna verkefnið samhliða vinnu/skóla.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.