Norðan stormur með snjókomu og skafrenningi

Gul veðurviðvörun er í gildi síðar í dag á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum. Búist er við norðan stormi eða hvassviðri með snjókomu og skafrenningi.

Á Austurlandi að Glettingi er spáð norðvestan hvassviðri 13-20 m/s með snjókomu og skafrenningi. Lélegt skyggni og slæm akstursskilyrði. Færð getur spillst. Gildir frá kl. 2 í dag til kl. 10 í kvöld, að því er segir á vefsíðu Veðurstofunnar.

Á Austfjörðum er spáð norðan stormi 18-25 m/s og hviður yfir 35 m/s. Snjókoma og skafrenningur, einkum norðantil. Lélegt skyggni og slæm akstursskilyrði, færð getur spillst. Gildir frá kl. 6 í dag til miðnættis á morgun.

Á vefsíðu Vegagerðarinnar segir að hálkublettir eða hálka séu á fjallvegum þessa stundina en snjóþekja á Breiðdalsheiði og Öxi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.