Landsnet skoðar úrbætur eftir rafmagnsleysi: Byggðalínan löngu sprungin

landsnet.jpg
Landsnet vinnur að greiningu á því hvort takmarka hefði mátt áhrif truflunar í álverinu í Straumsvík á raforkukerfið síðasta laugardag. Rafmagnslaust varð á öllu Austurlandi í kjölfarið. 

„Sú fyrirvaralausa breyting á álagi sem varð vegna truflunar hjá álverinu í Straumsvík á laugardag, og samsvarar 17% lækkun alls álags í raforkukerfinu, olli því að flutningur um byggðalínuna fór langt yfir getu hennar,“ segir í tilkynningu frá Landsneti.

Til að mæta slíkum áföllum er raforkukerfinu skipt upp í fjórar minni einingar, svokallaðar eyjar. Þegar verið var að byggja kerfið upp aftur á ný eftir truflunina á laugardag kom upp bilun í Blöndu sem leiddi til aflsskots. Rafmagn fór af á nánast öllu svæðinu frá Blöndu til Hafnar í Hornafirði.

Unnið er að því að greina betur hvort unnt hefði verið að takmarka áhrif truflunarinnar og afleitt straumleysi og ætlar Landsnet að fara yfir atburðarrás og úrbætur með sínum viðskiptavinum. Áhersla verður lögð á að sá búnaður sem tengist raforkukerfinu uppfylli allar gæðakröfur og að verklag tryggi að ýtrustu aðgátar sé gætt.

Eins og fram hefur komið í fréttum er byggðalínan löngu komin að þolmörkum og rafmagnsflutningar um hana milli landshluta því takmörkunum háðir.

Landsnet vinnur stöðugt að því að finna lausnir til að núverandi raforkukerfi standist sem best stór áföll en atburðarrásin reyndist kerfinu ofviða að þessu sinni. Takmörkuð flutningsgeta byggðalínunnar og hætta á óstöðugleika í raforkukerfinu vegna hennar hefur orðið til þess að gerðar hafa verið áætlanir um styrkingu byggðalínunnar með byggingu nýrra lína með mun meiri flutningsgetu.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.