Hreindýr valda umferðaróhöppum við álverið

Undanfarna daga hafa orðið nokkur umferðaróhöpp þar sem hreindýr hafa hlaupið í veg fyrir ökumenn sem eiga leið um Norðfjarðarveg við álverið í Reyðarfirði. 

Þetta kemur fram á vefsíðu lögreglunnar á Austurlandi. Þar kemur fram að á þessum slóðum hafi talsvert stór hjörð haldið til í nokkurn tíma.

"Lögreglan skorar á ökumenn sem þarna eiga leið um að hafa þetta í huga og fara sérstaklega varlega." segir á vefsíðunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.