Gul veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum í nótt og á morgun

Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum. Tekur hún gildi kl. 3 í nótt og stendur í sólarhring. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að spáð er vestanhvassviðri eða -stormi Austanlands í nótt og á morgun,

Á Austurlandi að Glettingi er spáð vestan og norðvestan 13-20 m/s með vindhviður að 30 m/s við fjöll. Ökumenn fari varlega, einkum ef ökutækin eru viðkvæm fyrir vindi.

Á Austfjörðum verður ástandið aðeins verra en þar er spáð vestan 15-23 m/s með vindhviður að 35 m/s. Ökumenn fari varlega, einkum ef ökutækin eru viðkvæm fyrir vindi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.