Fjárskortur í lögreglunni: Þrjá menn vantar upp á eðlilega mönnun

logreglumerki.jpg
Lögregluþjónar í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði eru sex talsins en ættu að vera níu miðað við stærð umdæmisins. Þrátt fyrir þetta er reksturinn í járnum. Yfirlögregluþjónn segir miklar kröfur um sértekjur eitt stærsta vandamálið.

Aðspurður segir Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn í Seyðisfjarðarumdæmi: „Það eru 3-4 lögregluembætti á landinu sem búa við óeðlilega sértekjukröfu og við erum eitt þeirra. Við eigum að afla okkur um níu milljóna króna í sértekjur og undir því getum við ekki staðið,“ 

Hann segir að yfirvöldum hafi verið bent á þetta en leiðrétting ekki fengist „þrátt fyrir ítrekaðar óskir.“

Sértekjur nánast engar

Embættið hafið töluverðar sértekjur á meðan framkvæmdum við Kárahnjúka stóð svo sem við fylgdir með sprengiefnaflutningum og þungaflutningum. Einnig komu sértekjur út á tollinn þegar hann tilheyrði embættinu.

Í fyrra var einn stærsti sértekjuliðurinn vegna aðstoðar við kvikmyndatöku Ben Stillers og kvikmyndatökulið á Seyðisfirði. „Við fengum 300-400 þúsund út úr því en það er langt frá þessum 8,7 milljónum sem okkur var ætlað að afla á síðasta ári“

Í dag eru sértekjurnar nánast engar og ekki í neinu samræmi við kröfurnar. Óskar segir reksturinn í járnum og það kemur niður á löggæslunni sjálfri.

Þriðjung vantar upp á eðlilega þjónustu

Þegar mest var störfuðu tíu lögregluþjónar hjá embættinu. Í dag eru þeir sex en eiga í raun að vera níu, svo sem vegna stærðar og umfangs embættisins.

„Embættið gæti aldrei borið það fjárhagslega, eins og staðan er í dag, að vera með þessa níu menn. Okkur vantar þriðjung af liðinu en samt er reksturinn í járnum,“ segir Óskar og bætir við að útlit sé fyrir að halli verði á rekstrinum í ár.

Reynt hefur verið að halda viðverutíma óskertum en á móti kemur að lögregluþjónarnir eru frekar einir á vakt. „Menn hafa ekki styrkingu hver af öðrum og það skapar hættu og óöryggi út af fyrir sig.“

Þá er umferðareftirlitið minna. „Við keyrðum tæplega 100.000 kílómetra í fyrra og útlit er fyrir að við keyrum 95.000 kílómetra á þessu ári. Ef við ættum að stunda eðlilega, hreyfanlega löggæslu þyrftum við að keyra 120-125 þúsund kílómetra á ári.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.