Fjöldi ferðmanna 2019 áttfaldur íbúafjöldi landsins

Ferðaþjónusta er helsti vaxtarbroddurinn í íslensku atvinnulífi síðastliðinn áratug. Ferðafólki til Íslands fjölgaði úr 500 þúsund 2010 í 2,4 milljónir á þessu ári, ef að líkum lætur. Fjöldi ferðafólks á ári er því um áttfaldur íbúafjöldi landsins.

Þessi mikli fjöldi leiðir óhjákvæmilega af sér aukið álag á landið og íbúa þess, sem hafa mikinn peningalegan hag af ferðaþjónustunni um leið og hún rýrir lífsgæðin á annan hátt. Fylgifiskar hennar eru semsagt bæði jákvæðir og neikvæðir. Jákvæð áhrif á mannlíf og atvinnulíf er að flestra mati ótvíræð, en um leið upplifa margir átroðning og slæma umgengni.

Á haustfundi ferðaþjónustunnar, sem haldinn var í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 14. nóvember á vegum Áfangastaðarins Austurland, var farið ítarlega yfir stöðu greinarinnar og mál krufin til mergjar. Flutt voru sjö framsöguerindi um hina ýmsu þætti ferðaþjónustunnar.

Íbúar á Austurlandi eru flestir mjög jákvæðir gagnvart ferðaþjónustunni, samkvæmt skýrslu Eyrúnar Jennýar Bjarnadóttur, Viðhorf heimamanna til ferðamanna og ferðaþjónustu 2018 - Egilsstaðir. Fólk sér mikil tækifæri í frekari uppbyggingu hennar og telur að útlent ferðafólk hafi gætt samfélagið lífi og haft jákvæð áhrif á mannlífið. Hins vegar er fólk hræddara við að aka um þjóðvegi landsins og telur að efla þurfi innviði í ferðaþjónustu í fjórðungnum.

Landlæg afleiðing af uppgangi ferðaþjónustunnar, og þar meðtalið á Austurlandi, er að fjölgun ferðafólks hefur haft neikvæð áhrif á húsnæðismál. Í skýrlsu Eyrúnar segir orðrétt:

„Á öllum stöðunum kom fram að ferðaþjónusta hefði haft neikvæð áhrif á leigumarkað. Alls staðar, einkum þó á smærri stöðunum þremur, höfðu íbúar fundið tengsl milli erfiðleika á húsnæðismarkaði og skammtímaleigu húsnæðis til ferðamanna, sem oft er talað um sem heimagistingu eða Airbnb. Af niðurstöðunum að dæma litu heimamenn á heimagistingu bæði sem böl og blessun fyrir samfélögin.“

Ljóst er að ferðaþjónustuaðilar á Austurlandi eru í sóknarhug og fylgjast grannt með öllu er lýtur að markaðssetningu og framþróun greinarinnar, hvort heldur er stafræn þróun eða stefnuáherslur í markaðssetningu almennt. Jafnframt eru aðilar meðvitaðir um þá samfélagslegu ábyrgð sem því fylgir að byggja upp atvinnustarfsemi, sem óhjákvæmilega hefur í för með sér samfélagslegar breytingar kallar á hugarfarsbreytingu heimafólks í umgengni við landið og náttúruna. Á vef Austurbúar má sjá samantekt um ráðstefnuna og nálgast glærur fyrirlesara.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.