Fjarðabyggð óskar eftir afstöðu íbúa til komu skemmtiferðaskipa

Starfshópur um gerð ferðamálastefnu Fjarðabyggðar vinnur þessa dagana að söfnun upplýsinga um afstöðu íbúa Fjarðabyggðar til komu skemmtiferðaskipa.

Frá þessu er greint á heimasíðu Fjarðabyggðar. Um er ræða þrjár stuttar kannanir sem teknar verða meðal íbúa í sumar. Í fréttinni segir að fyrr á árinu hafi verið stofnaður starfshópur á vegum sveitarfélagsins sem hefur þann tilgang að móta stefnu í málefnum sem snúa að ferðaþjónustu, en áætlað er að hópurinn klári sína vinnu í haust.

Tólf skemmtiferðaskip munu heimsækja Fjarðabyggð í sumar. „Á þeim fundum og samtölum sem starfshópurinn hefur átt í undirbúningi fyrir sína vinnu komu fram athugasemdir sem snúa að komu skemmtiferðaskipa. Starfhópurinn vill því hafa það í huga við sína vinnu. Við viljum kanna á meðal íbúa Fjarðabyggðar hvernig upplifun íbúa af komu skemmtiferðaskipa er. Það gerum við hins vegar ekki án ykkar aðstoðar,” segir Magni Þór Harðarson formaður menningar- og nýsköpunarnefndar Fjarðabyggðar, en auk hans skipa þeir Þórður Vilberg Guðmundsson upplýsinga- og kynningafulltrúi Fjarðabyggðar og Valgeir Ægir Ingólfsson atvinnu- og þróunarstjóri Fjarðabyggðar starfshópinn.

Á heimasíðu Fjarðabyggðar verða því aðgengilegar kannanir í allt sumar þar sem fólk getur sagt afstöðu sína til komu skemmtiferðaskipa og er sú fyrsta er aðgengileg hér.

„Við viljum því biðja íbúa um að fara reglulega inn á heimasíðu Fjarðabyggðar og svara spurningum sem snúa að upplifun íbúa. Sendar verða út tilkynningar þegar ný könnun tekur gildi. Eins hvetjum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila til að svara líka, en auk þess verður sér könnun senda til þeirra í tölvupósti vegna afstöðu þeirra til skemmtiferðaskipana. Niðurstöðurnar munu svo hjálpa til við að móta stefnu fyrir ferðaþjónustu í Fjarðabyggð sem verður í samræmi við væntingar og þarfir íbúa og samfélagsins alls,” segir Magni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.