Enginn fiskur í netum Laxa í Reyðarfirði

„Fiskistofa vitjaði netanna 21. janúar og reyndist enginn fiskur í netunum. Í framhaldi voru netin tekin upp að beiðni Fiskistofu,“ segir í uppfærslu frá Matvælastofnun um gatið sem kom á sjókví Laxa í Reyðarfirði í síðustu viku. Netin voru lögð út til að stöðva lax sem gæti hafa sloppið úr sjókvínni.


Í uppfærslunni segir: „Fiskistofa vitjaði netanna 21. janúar og reyndist enginn fiskur í netunum. Í framhaldi voru netin tekin upp að beiðni Fiskistofu. Matvælastofnun fyrirskipaði að kafað yrði í allar kvíar á eldissvæðinu Vattarnesi og að köfunarskýrslum yrði skilað til stofnunarinnar. Ekkert reyndist athugavert við aðrar kvíar á svæðinu.

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun árétta að fiskur á eldissvæðinu Vattarnesi í Reyðarfirði er ekki sýktur af Blóðþorra. Öll eldissvæði á Austfjörðum eru undir reglubundnu eftirliti með áherslu á skimanir gegn ISA veirunni.“

Eins og kunnugt er af fréttum barst Matvælastofnun tilkynning frá Löxum Fiskeldi fimmtudaginn 20. janúar um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Laxa við Vattarnes í Reyðarfirði.

Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit með kvíum á stöðinni og virkjaði fyrirtækið viðbragðsáætlun sína strax og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Laxa var gatið á um 7 m dýpi og reyndist vera um það bil 50x15 cm að stærð. Í þessari tilteknu kví eru um 145.000 laxar með meðalþyngd 2,6 kg.

Laxar lögðu út net í takt við viðbragsáætlun og tilkynntu Matvælastofnun, Fiskistofu og Fjarðarbyggð strax um atburðinn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.