Arnar fundinn heill á húfi
Arnar Sveinsson, sem lögreglan á Austurlandi lýsti eftir þann 2. desember síðastliðinn, er kominn í leitirnar.Í tilkynningu frá lögreglu segir að hann hafi fundist erlendis heill á húfi. Þar er þökkuð veitt aðstoð við leitina.
Arnar hefur aldrei búið eystra, en á hins vegar ættingja á Fljótsdalshéraði sem leituðu til lögreglu þar eftir aðstoð við að hafa uppi á honum. Þess vegna var málið á forræði lögreglunnar á Austurlandi. Síðast var þá vitað um ferðir hans í Berlín í Þýskalandi í lok sumars.