Áfram aðeins einn í einangrun á Austurlandi vegna COVID

Áfram er aðeins einn einstaklingur enn í einangrun á Austurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi.

"Aðgerðastjórn vekur athygli á mikilvægi þess að fylgja tilmælum sóttvarnaryfirvalda og ferðast ekki að nauðsynjalausu til höfuðborgarsvæðisins. Sé ekki frá því vikist er hvatt til aðgæslu meðan á dvöl stendur, að halda sig frá margmenni, nota grímu þar sem það á við og hanska, muna handþvottinn og sprittnotkun," segir í tilkynningunni.

"Að sama skapi eru þeir sem koma frá höfuðborgarsvæðinu hvattir til að gæta sérstaklega að sér. Aðgerðastjórn áréttar að mestar líkur eru á að veikindi komi fram innan sjö daga frá smiti. Það er því sá tími sem mest á reynir að við gætum að einkennum veikinda, förum varlega gagnvart öðrum, að við höldum fjarlægð eins og hægt er og notum grímu í aðstæðum þar sem erfitt er að tryggja og virða fjarlægðarmörk. Meðgöngutími smits er allt að fjórtán dagar.

Það er mikils um vert að vel takist til í smitvörnum fyrir fjórðunginn en ekki síður fyrir landsmenn alla að dreifing veirunnar sé sem minnst. Þannig verður auðveldara að takast á við hana. Ábyrgð okkar er því mikil.

Við þekkjum öll til veirunnar, við þekkjum smitleiðir, við þekkjum áhættuþættina, við vitum af því óveðri sem geysar á höfuðborgarsvæðinu, við þekkjum stöðuna hér og við þekkjum meðgöngutíma smits. Högum okkur, og gerum það saman, í samræmi við þessa vitneskju og beitum góðri dómgreind hvert og eitt okkar. Með hana í farteskinu eru okkur allir vegir færir.

Gætum að okkur hvert og eitt ásamt þeim sem við umgöngumst og komumst þannig í gegnum þetta saman".

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.