Aflaverðmæti Hoffells er komið yfir milljarð króna

Það hefur gengið vel hjá Hoffellinu það sem af er ári. Aflaverðmæti er komið yfir einn milljarð króna sem verður að teljast afar góður árangur. Sér í lagi í ljósi þess að engin loðnuveiði var s.l vetur,

Þetta kemur fram á vefsíðu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði (LVF). Þar segir m.a. að full ástæða sé til að fagna slíkum áfanga. Áhöfinni var því færð kaka að þessu tilefni sem gerð voru góð skil.  

“Kakan klikkar ekkert” segir Sigurður Bjarnason skipstjóri þegar kökuna bar á góma og hann var að vonum stoltur og ánægður með árangurinn að því er fram kemur á vefsíðunni. Og segir réttilega að þetta snúist allt um verðmæti. 

Hoffellið er í síðasta síldartúrnum að sinni. Skipið er komið út undir Skrúð á leið norður í Seyðisfjarðardýpi þar sem freista skal þess að ná í síðustu 400 tonnin af síldinni.  “Síldin hefur verið mjög góð á þessari vertíð” segir Sigurður.  

Eftir þennan síldartúr fer Hoffell í slipp til Færeyja. Þar á að ljúka við að skipta út kælikerfinu. Undirbúningsvinna hefur þegar farið fram í síðasta slipp en nú er komið að því að ljúka því verki. 

Sigurður fer í frí meðan skipið verður í slipp og þegar hann er inntur eftir því hvort að hann ætlar að gera eitthvað sérstakt í fríinu svarar hann að tímanum verði varið með fjölskyldunni.

Mynd: LVF

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.