Gagnast áherslur nýrrar ríkisstjórnar launafólki frekar en sérhagsmunahópum?

sigurdur holm freysson afl 1mai13Verkalýðshreyfingin býr sig undir baráttu í komandi kjarasamningum sem snúist um fleira en feitari launaumslög. Velferðarkerfið þarf ekki síður að verja og berjast fyrir varanlegum lausnum sem nýtast til hagsbóta launþegum.

Þetta kom fram í fyrsta maí ávarpi AFLs – starfsgreinafélags sem dró mark af því að þingkosningar voru nýafstaðnar.

Þar er lýst takmarkaðri trú á að staðið verði við stóru kosningaloforðin, helsta baráttan verði áfram að takast á við afleiðingar efnahagshrunsins.

„Það sem mun breytast eru áherslurnar,- munu þær áherslur gagnast launafólki frekar en sérhagsmunahópum? Það er verkefni okkar að sameinast um að svo verði,“ sagði Sigurður Hólm Freysson, varaformaður, sem flutti ávarpið á Egilsstöðum.

Nýir kjarasamningar snúast um félagslegt réttlæti

Viðræður um nýja kjarasamninga hefjast í haust. Þær snúast um meira en að „sækja meira í launaumslögin til atvinnulífsins.“

Stóran er sögð snúast um „félagslegt réttlæti. Að ná sáttum í þjóðfélaginu á forsendum launafólks og heimilanna í landinu.“

Þar eru nefnd húsnæðislán á svipuðum kjörum og á Norðurlöndunum og koma „launafólki út úr vítahring síðustu áratuga í formi hárra vaxta og verðtryggingar.“

Velferðarkerfið ber einnig á góma þar sem lögð er áhersla á að haldið verði í norrænar fyrirmyndir en ekki farið í „frjálslynt, kapítalískt kerfi“ þar sem kostnaðurinn lendir á einstaklingnum.

Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu bitnar harðast á konum

Sérstökum áhyggjum er lýst af kjörum starfsmanna heilbrigðisstofnana. „Þar starfa nær eingöngu konur, sem hafa tekið á sig alvarlegar kjaraskerðingar á síðustu árum, bæði í formi þess að starfsfólki hefur fækkað og álag aukist á þá starfsmenn sem eftir.

Skerðingar á starfshlutföllum er nokkuð sem stjórnendur í heilbrigðisgeiranum bjóða starfsmönnum upp á en það dettur engum í hug að bjóða öðrum en konum upp á slíka afarkosti.“

Kaupmáttur – atvinna – velferð voru einkunnarorð íslensku verkalýðshreyfingarinnar á 1. maí í ár. Þar var meðal annars minnst á átakið „vertu á verði“ þar sem félagsmenn eru hvattir til að senda inn upplýsingar á verð á vöru og þjónustu og breytingar til að veita aðhald.

Ekki virðist veita af. „Krónan hefur styrkst um 11% á síðustu tveim mánuðum, -kannast einhver við að verð á innfluttri vöru hafi lækkað?

- Nei, ekki nema þá helst á eldsneyti!“

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.