Viðbúið að framkvæmdirnar valdi tímabundnum truflunum

Framkvæmdir eru að hefjast við lagningu 132 kílóvolta (kV) jarðstrengja frá Stuðlalínu tvö sunnan Eskifjarðar að tengivirki Landsnets á Eskifirði og áfram þaðan að loftlínum ofan við bæinn.


Áætlaður kostnaður er 125 milljónir króna og er stefnt að því að framkvæmdum ljúki á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.

Verkið felst í endurnýjun á þeim köflum Stuðlalínu tvö og Eskifjarðarlínu eitt sem eru í jörð á Eskifirði. Annars vegar verður lagður 1.200 metra langur jarðstrengur frá endastæðu Stuðlalínu tvö, sunnan Eskifjarðar, að tengivirki á Eskifirði og hins vegar um 260 metra langur strengur frá tengivirkinu að endastæðu Eskifjarðarlínu eitt, ofan við bæinn.

Vinna við þverun Eskifjarðarár hefst fyrir áramót en skurður fyrir strengi verður grafinn eftir áramót. Í framhaldinu verður hafist handa við lagningu strengjanna og er stefnt að spennusetningu á fyrsta ársfjórðungi 2016, en endanleg dagsetning ræðst af gangi framkvæmda og veðri.

Kaup á strengefni voru boðin út í sumar og var samið við Telefonika í Póllandi. Lagning strengsins var einnig boðinn út og var samið við Yl ehf. á Egilsstöðum um verkið. Breyta þarf endastæðum beggja loftlínanna og mun vinnuflokkur Landsnets annast það verk, ásamt því að sjá um tengingar strengsins.

Framkvæmdirnar eru liður í styrkingu svæðiskerfis Landsnets á Austurlandi þar sem núverandi strengir anna ekki áætlaðri framtíðarnotkun á svæðinu og hljóðar kostnaðaráætlun verksins upp á 125 milljónir króna.

Viðbúið er að framkvæmdirnar valdi tímabundnum truflunum, einkum næst framkvæmdasvæðinu, og eru íbúar á Eskifirði, sem og aðrir, beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.