Þröstur Eysteinsson skipaður í embætti skógræktarstjóra

throstur eysteinsson webUmhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Þröst Eysteinsson í embætti skógræktarstjóra til fimm ára. Þröstur hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Þröstur hafi verið annar tveggja umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfastan til að gegna embættinu. Hann lauk doktorsprófi í skógarauðlindum frá háskólanum í Maine í Bandaríkjunum og meistaragráðu í skógfræði frá sama skóla.

Áður en hann tók við stöðu sviðsstjóra Þjóðskóganna starfaði hann sem fagmálastjóri Skógræktar ríkisins og þar á undan sem sérfræðingur hjá rannsóknarstöð sömu stofnunar sem og héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á Húsavík.

Þá hefur Þröstur skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina um skógrækt og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sviði skógræktar.

Þröstur er skipaður í embætti skógræktarstjóra frá 1. janúar næstkomandi og er honum meðal annars falið að fylgja eftir nýlegum tillögum starfshóps um sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun.

Þröstur er kvæntur Sherry Curl og eiga þau tvö uppkomin börn.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.