Kaupir Travel East: Viljum auka ferðamennskuna utan háannatímans

Friðrik Árnason, eigandi Hótels Bláfells á Breiðdalsvík, hefur keypt ferðaskrifstofuna Travel East. Hann segir litlar breytingar framundan á fyrirtækinu en markmiðið sé að efla ferðamennsku utan háannatíma.


„Við ætlum okkur að skerpa áherslur og efla reksturinn. Þetta er flott fyrirtæki og hefur fest sig í sessi sem ferðaskrifstofan á Austurlandi fyrir erlenda ferðamenn. Við vonum að eina breytingin verði sú að það verði meira að gera," segir Friðrik.

Heiður Vigfúsdóttir og Magnfríður Ólöf Pétursdóttir stofnuðu fyrirtækið upphaflega undir nafninu Austurför. Þær hverfa nú frá Travel East en halda áfram rekstri undir íslenska heitinu og sjá meðal annars um tjaldsvæðið á Egilsstöðum.

Friðrik segir að mikil samvinna hafi verið milli Bláfells og Travel East og séu kaupin rökrétt framhald af því. Hann segir tækifæri í vaxandi ferðamennsku á Austurlandi.

„Við höfum byggt mikið upp í Breiðdal og kaupin eru því eðlilegt framhald til að loka heildarmyndinni.

Við þurfum að bjarga okkur sjálf til að sækja ferðamenn utan háannatíma. Það hefur mikið að gera á Suðurlandi og Vesturlandi en ekki nóg á Austurlandi.

Þetta er flott fyrirtæki sem getur nýst til að bjóða upp á flotta og fjölbreytta afþreyingu fyrir ferðamenn og auka nýtingu á þeirri fjárfestingu sem lögð hefur verið í gistirými í fjórðungnum."

Margrét Árnadóttir verður áfram starfsmaður Travel East. Kaupverðið er ekki gefið upp.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.