„Framleitt á fullu alla daga"

gullver seyTvöfalt meiri afli hefur komið til vinnslu hjá fiskvinnslustöð Gullbergs á Seyðisfirði í ár en í fyrra.

Það sem af er ári er unnin afli 2.600 tonn meðan hann var 1.310 á sama tíma í fyrra. Nánast allur afli sem unninn hefur verið í fiskvinnslustöðinni á árinu er ufsi og þorskur. Einungis örlítið af ýsu hefur fengið að fljóta með.

Ómar Bogason hjá fiskvinnslustöð Gullbergs segir að þróunin sé svo sannarlega ánægjuleg.

„Þetta er rosaleg breyting. Um langt skeið hefur yfirleitt ekki verið unnin full vinnuvika hjá okkur en nú er framleitt á fullu alla daga. Það er séð til þess að ávallt sé nægilegt hráefni til vinnslu – þetta er eins og í súkkulaðiverksmiðju.

Svona þarf þetta að vera og við væntum þess að í framtíðinni verði vinnslan hér vel búin og skili góðri rekstrarniðurstöðu. Starfsfólkið er mjög ánægt með þessa breytingu á starfseminni og það hefur allt staðið sig frábærlega," sagði Ómar.


Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.