Vilja aðgerðaáætlun um millilandaflug um Egilsstaði og Akureyri: Þörf á að dreifa ferðamönnum

kristjan moller sept14 3Íslensk stjórnvöld verða að koma markvissar að kynningu á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum til að auka möguleika á millilandaflugi um þá. Þingsályktunartillaga liggur fyrir Alþingi um að gera aðgerðaáætlun.

Átta þingmenn Samfylkingar, Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Pírata standa að tillögunni sem lögð var fram í síðustu viku en Kristján L. Möller, þingmaður Norðausturkjördæmis, er fyrstu flutningsmaður hennar.

Samkvæmt henni skulu innanríkisráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggja fyrir Alþingi, eigi síðar en í lok janúar á næsta ári, áætlun um aðgerðir sem ráðast þarf í til að reglubundið millilandaflug um flugvellina tvo geti hafist.

Í greinargerð með tillögunni er meðal annars komið inn á að þörf sé að dreifa ferðamönnum betur um landið til að minnka álag á fjölförnum stöðum sunnanlands.

Um leið myndi flugið gjörbreyta möguleikum ferðaþjónustunnar á svæðunum, lengja ferðamannatímabil, efla atvinnulíf þar og opna nýjar leiðir fyrir íbúa svæðisins til ferðalaga.

Þar segir að um 97% ferðamanna til landsins komi í gegnum Keflavík, 1,8% með Norrænu til Seyðisfjarðar en aðrir með beinu flugi til Reykjavíkur eða Akureyrar.

Gagnrýnt er að stjórnvöld hafi lítið gert til að styðja við markaðssetningu annarra flugvalla en í Keflavík.

„Ljóst er að það má skrifa á reikning stjórnvalda að nýir áfangastaðir með flugi fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi, aðrir en Keflavík, hafa lítt eða ekki verið skoðaðir af alvöru; áhersla við opinbert kynningarátak fyrir ferðaþjónustu hefur svo að segja öll miðað að því að efla flug um Keflavíkurflugvöll."

Hvatt er á að stjórnvöld hugi sérstaklega að því að bjóða upp á hvatakerfi til að laða erlend flugfélög til staðanna, til dæmis sé hægt að fella niður eða lækkað opinber gjöld tengd flugrekstri. Það hafi verið gert með flugvelli á jaðarsvæðum í nágrannalöndunum.

Þá er kallað eftir að ríkið búi flugvellina þannig úr garði að þeir uppfylli kröfur um þjónustustig vegna aukinnar umferðar og ríkið móti sér framtíðarstefnu um millilandaflugvelli.

Í kafla um flugvöllinn á Egilsstöðum eru nefndir fleiri möguleikar en farþegaflug, svo sem fraktflug á Norðurslóðum, pólarflug og aðstoð við olíuleit.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.