Heyrúlla flaut átta kílómetra með ánni - Myndband

11822761 10204589341190291 6972727024750676599 nMikið flóð varð að Skriðufelli í Jökulsárhlíð í vikunni, í kjölfar mikillar úrkomu. Túnin voru undirlögð vatni eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan, sem var tekið af Stefaníu Malen Stefánsdóttur á Skriðufelli.

Ragnar Magnússon, bóndi á Skriðufelli, segir úrkomuna hafa verið gríðarlega mikla, en allt sé þó komið í gott horf núna. Heyrúllur stóðu óhirtar á túninu og fóru tvær þeirra af stað með ánni í átt til hafs. „Þær flutu nú ekki út á haf en önnur þeirra fór helvíti langt, ætli hún hafi ekki farið eina átta kílómetra með ánni,“ sagði Ragnar í samtali við Austurfrétt.

„Þetta er komið í gott horf núna og maður er að reyna að týna saman rúllur. Maður hefur nú meiri áhyggjur af því hvernig manni tekst að slá restina. Ef það fer ekki að þorna almennilega þá fer þetta að verða vandamál, landið er svo rosalega blautt eftir rigningarnar,“ sagði Ragnar.

 

Aðeins of mikil rigning, svona var ástandið í gær

Posted by Stefanía Malen Stefánsdóttir on Thursday, August 6, 2015

Mynd: Heiðar Broddason - Facebook

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.