Fjarðabyggð tekur í notkun nýjan sérútbúinn bíl fyrir ferðaþjónustu fatlaðra

ferdathjonusta fatladra fjardabyggdFerðaþjónusta fatlaðra tók í gær  notkun nýja og sérútbúna bifreið fyrir þjónustu við ferlifatlaða.

Bifreiðin er í alla staði glæsileg og mikilvægur liðsauki við félagsþjónustu Fjarðabyggðar. Það var því ánægjuleg stund þegar Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, afhenti ásamt Sigrúnu Þórarinsdóttur, félagsmálastjóra, Sveini Guðmundssyni bifreiðarstjóra hjá ferðaþjónustu fatlaðra lykilinn að nýju bifreiðinni.

Auk þess að uppfylla öryggiskröfur á þessu sviði farþegaflutninga, er bifreiðin búin út með sérhæfðum bakstuðningi í aftanverðu farþegarými, sem eykur bæði öryggi og þægindi hjólastólafarþega.
Farþegarými er rúmgott og auðvelt að veita þá aðstoð sem þarf hverju sinni. Þá er farþegalyfta bílsins af fremstu gerð og auðveldar aðgengi hjólastóla að bílnum.

Bifreiðin er fjórhjóladrifinn Sprinter smárúta frá Mercedes Benz og flýtur allt að fimm farþega í sæti og tvo farþega í hjólastól í einu.

Það var vefur Fjarðabyggðar sem greindi frá þessu í gær.


Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.