Þrjátíu starfsmenn Vísis fóru suður til að skoða aðstæður

visirhf flug 0003 webTæplega 30 starfsmenn fiskvinnslu Vísis á Djúpavogi fóru með morgunflugi frá Egilsstöðum klukkan níu áleiðis til Grindavíkur til að skoða aðstæður þar. Vísir hyggst hætta bolfiskvinnslu á Djúpavogi í sumar og hefur boðið starfsmönnunum að flytjast suður.

Hópurinn fór af stað rétt rúmlega sex í morgun frá Djúpavogi með rútu upp í Egilsstaði. Þeir starfsmenn sem Austurfrétt ræddi við á flugvellinum í morgun sögðu stemminguna í hópum „merkilega góða miðað við aðstæður."

„Við sjáum til," sagði einn þeirra aðspurður um hvernig honum litist á ferðina.

Í hópnum voru 28 starfsmenn af erlendum uppruna, þar af tvær fjölskyldur með börn auk íslensks fararstjóra.

Ekki þekktust allir boð Vísis um að fara og kynna sér aðstæður í Grindavík en nokkrir Íslendingar afþökkuðu það.

Gert er ráð fyrir að hópurinn komi aftur seinni partinn.

Hjá Vísi á Djúpavogi hafa starfað 50 manns. Tilkynnt var um áformin í lok mars. Gert er ráð fyrir að helmingur hópsins fái vinnu við þjónustu við Fiskeldi Austfjarða. Þar ganga þeir fyrir sem lengst hafa starfað á staðnum. Öðrum er boðin aðstoð við að koma sér fyrir í Grindavík þangað sem vinnslan flyst.

visirhf flug 0004 webvisirhf flug 0007 webvisirhf flug 0009 web

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.