Dvalarheimili aldraðra kaupir fjórtán íbúðir af Íbúðalánasjóði

egilsstadir 04062013 0008Dvalarheimili aldraðra á Egilsstöðum hefur keypt fjórtán íbúðir af Íbúðalánasjóði. Framkvæmdastjóri heimilisins segist finna fyrir miklum áhuga á íbúðunum sem auglýstar voru til leigu í lok síðustu viku.

„Eftirspurnin er til staðar og við finnum fyrir miklum áhuga" segir Þórhallur en hann segist vonast til þess að allar íbúðirnar verði komnar í útleigu fljótlega.

„Við munum byrja á því að leigja út sex til átta íbúðir en hinar verða, til að byrja með, leigðar út á almennum markaði. Íbúðirnar verða leigðar eldri borgurum en þjónusta er háð mati og þjónustusamningi."

Íbúðirnar, sem ætlaðar eru fólki eldri borgunum og yngri einstaklingum með hjúkrunarþörf, eru í Hamragerði rétt hjá mjólkurstöðinni.

„Til koma íbúðanna þýðir bætt lífsgæði fyrir okkur öll sem hér búum, það að við getum notið ánægjulegrar stunda, með öruggri þjónustu í heimabyggð."

Nína Hrönn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilbrgðisstofnun Austurlands., segir fjölbreyttari búsetuúrræði á Fljótsdalshéraði og nágrenni hafa skort. Með íbúðunum aukast líkurnar á að hjón geti búið lengur saman þótt annað veikist.

„Í framtíðinni má ætla að hægt væri að byggja upp þjónustu í kringum íbúðirnar til að hámarka dvöl eldra fólks í eigin húsnæði," segir Nína.

Þar skiptir uppbygging þjónustukjarna máli fyrir aldraða því þar með sé skapaður möguleikai á sólarhringsþjónustu, einnig fyrir aðra en þá sem búa í kjarnanum. „Þetta eykur öryggiskennd og sjálfstæði aldraðra."

Kaupverðið fæst ekki gefið upp.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.