Orkumálinn 2024

Til hamingju Austurland!

Til hamingju með stofnun FKA Austurland. Takk nýkjörin stjórn og forsvarskonur FKA Austurland fyrir hugrekkið og kraftinn. Við höfum lengi beðið eftir þessari stund og ekki að ástæðulausu því hér á Austurlandi er verk að vinna.

Miðað við nýjustu tölur um tekjur eftir sveitarfélögum frá árinu 2021 eru konur í Múlaþingi með 75% af launum karla og í Fjarðabyggð 63% af launum karla, sem er jafnframt lægsta hlutfall sveitarfélaga á landinu. Á landsvísu er sama hlutfall um 82% og í Reykjavík 86%.

Samkvæmt nýjustu skýrslu World Economic Forum erum við á Íslandi skást í heimi þegar kemur að jafnrétti kynja og en á landsvísu eru sveitarfélögin á Austurlandi eftirbátar annarra. Enn er líka langt í land þegar kemur að jafnrétti í stjórnum, bæði varðandi hlutfall kvenna á meðal stjórnarmanna og stjórnarformanna.

Hvað veldur þessu gapandi ójafnrétti, bæði þegar kemur að tekjum og völdum kvenna? Eru konur einfaldlega ekki tilbúnar til forystu, ekki leiðtogar í eðli sínu?

Skoðum fyrst hvað það er sem einkennir góða leiðtoga. Í mínum huga er það fyrst og fremst að leggja rækt að fólkinu í kringum sig, að lifa eftir gildum sínum og af heilindum. Leiðtogar hafa ennfremur skýra framtíðarsýn og markmið og hafa þau áhrif að annað fólk fylkir sér að baki þeim markmiðum. Sannir leiðtogar efla samvinnu, samráð og samstarf til að ná settu marki og setja á fót skipulag, kerfi, hefðir og venjur til að ná þeim árangri sem stefnt er að.

Í mínum huga eru einkenni góðra leiðtoga að finna í hverri einustu konu. Þá gildir einu hvort hún tekst á við þær hindranir sem fylgja því að lifa sem kona í þessu samfélagi eða þær áskoranir sem fylgja því að vera í forystu á heimilum, í stórfjölskyldum, félagasamtökum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum. Raunin er sú að nægt framboð er af kvenleiðtogum.

Vandamálið felst hins vegar í að við lifum í samfélagi sem er enn kynjaskipt í hlutverkum kvenna og karla. Þetta kynjakerfi birtist í versta falli í kynbunu ofbeldi og áreitni en einnig í óheilbrigðri og skaðlegri áherslu á útlit og líkama kvenna. Konur bera meiri ábyrgð inni á heimilum, hvort sem um ræðir húshald, eða umönnun barna, öryrkja og aldraðra. Þegar kemur að ráðningum er körlum oftar hyglt í gegnum óformleg ráðningarferli og konur eru mældar á öðrum mælistikum en karlar. Þessi samfélagsgerð er ekki sýnileg þegar við horfum á yfirborðið enda erum við ómeðvituð um flest þessara viðhorfa og hefða. Það er hlutverk samtaka eins og FKA Austurlands að vekja okkur öll til meðvitundar um vandamálið og að vekja athygli á óréttlætinu. Saman þurfum við öll að búa til nýtt kerfi sem hyglir ekki einum hópi fram yfir annan, heldur gefur öllum jöfn tækifæri óháð, kyni, kynhneigð, uppruna, aldri, fötlunum og fjárhagsstöðu. FKA Austurland, veitir aukinn kraft og nýjan vettvang í baráttunni fyrir jafnrétti á Austurlandi.

Til hamingju Austurland!

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.