Soffía Lárusdóttir sækist eftir öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokks í NA

Soffía Lárusdóttir, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar í vor. Soffía er forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi.

490572.jpg

 

Soffía segir að mikil vinna sé framundan við endurreisn íslensks samfélags. Mikilvægt sé að til þess veljist nýtt fólk með mismunandi þekkingu og reynslu. Soffía hefur víðtæka reynslu af stjórnun og uppbyggingu í héraði og á landsvísu. Sú reynsla hefur margvíslega skírskotun við endurreisn landsins. 

 

Soffía er 48 ára gömul, fædd og uppalin á Kirkjubæjarklaustri en hefur verði búsett á Egilsstöðum í 24 ár. 

 

Soffía er með B.A. próf í þroskaþjálfafræðum og hefur lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.

  

Soffía hefur verið forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 2004 og setið í bæjarráði frá 2006. Hún er varaformaður launanefndar sveitarfélaga.

  

Soffía er formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins og situr í miðstjórn hans. Hún á sæti í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélags Fljótsdalshéraðs og er fulltrúi í stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna.

  

Soffia tók sæti í bæjarstjórn Austur-Héraðs árið 1998 og var formaður bæjarráðs til 2002 og síðan forseti bæjarstjórnar til sameiningar þeirra þriggja sveitarfélaga sem í dag mynda Fljótsdalshérað.

  

Soffía var formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2003 – 2006.

 

Maki Soffíu er Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri og bæjarfulltrúi. Eiga þau fimm börn og sjö barnabörn.    

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.