Samfélagssjóður Alcoa styrkir grasrótarstarf og menningarlíf ungs fólks á Austurlandi

Þrettán leikhópar ungs fólks á Austurlandi undirbúa nú sýningar á þremur nýjum, íslenskum leikritum. Uppsetning verkanna er liður í Þjóðleik, leiklistarhátíð ungs fólks á Austurlandi, sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti forsvarsmönnum verkefnisins 2.380.000.- kr. styrk frá alþjóðlegum samfélagssjóði Alcoa við athöfn í höfuðstöðvum Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði síðastliðinn þriðjudag.

jleikur_vefur_aal.jpg

Ný verk á fjalirnar 

Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu, Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Alcoa segir að

hátt í tvö hundruð ungmenni í þrettán leikhópum af öllu Austurlandi, allt frá Vopnafirði að Höfn í Hornafirði, taki þátt í Þjóðleik og æfi nú ný leikverk eftir Bjarna Jónsson, Sigtrygg Magnason og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann, sem voru skrifuð sérstaklega fyrir verkefnið.

,,Hver hópur mun frumsýna í sinni heimabyggð, en uppskeruhátíð verður haldin á Egilsstöðum 25.-26. apríl næstkomandi, þar sem allir hóparnir koma saman og sýna verk sín. Þetta verður stærsta leiklistarhátíð sem haldin hefur verið hér á landi. Stjórnendur hópanna hafa undanfarið notið aðstoðar og faglegrar leiðsagnar sérfræðinga og listamanna Þjóðleikhússins. Námskeið hafa verið haldin í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði, og hafa þau verið mjög vel sótt,“ segir í tilkynningunni. jleikur_vefur1.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Margföldunaráhrifin 

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, sagði við afhendingu styrksins á þriðjudag að öflugt menningarlíf væri forsenda byggðar alls staðar á landinu, ekki síður en öflugt atvinnulíf. ,,Við breyttar aðstæður í samfélaginu var lögð sérstök áhersla á það við  úthlutun styrkja úr samfélagssjóði Alcoa að þau verkefni sem hlytu styrk byggðust á þátttöku sem allra flestra og einnig að sem flestir gætu notið  þeirra.  Það er þess vegna mjög ánægjulegt að sjá hversu góð þátttaka er í þessu spennandi verkefni,” sagði Tómas Már.

„Nú um stundir er mikilvægi verkefnis sem þessa ótvírætt, enda er inntak þess samstaða og sköpunarkraftur. Margfeldisáhrif Þjóðleiksverkefnisins verða gífurleg og það er von leikhússins að allir þeir sem að því koma muni búa lengi að reynslu sinni og að hún verði hvatning til fleiri góðra verka,” sagði Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri við styrkveitinguna.

 

 

jleikur_vefur2.jpg

 

 

 

 Myndir/Steinunn

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.